Auglýsing um skipulagsmál

AUGLÝSING UM SKIPULAGSMÁL

Í UPPSVEITUM ÁRNESSÝSLU OG FLÓAHREPPI

Bláskógabyggð,Grímsnes-og Grafningshreppi,Hrunamannahreppi, Skeiða-og Gnúpverjahreppi og Flóahreppi

 

Samkvæmt 1. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 er hér kynnt tillaga að lýsingu skipulags fyrir eftirfarandi aðalskipulagsbreytingar:

  1. 1.Breyting á Aðalskipulagi Hrunamannahrepp 2003-2015 á spildu úr landi Miðfells 3

Svæðið sem breytingin nær til er um 8 ha spilda úr landi Miðfells 3 sem staðsett er suðaustur af Miðfellshverfinu. Aðkoma að spildunni er fyrirhuguð um veg sem liggur í gegnum land Dalbæjar 1. Fyrirhugað er reisa gistihús á svæðinu fem felur í sér að breyta þarf svæðinu úr landbúnaðarsvæði í svæði fyrir verslun- og þjónustu.

  1. 2.Breyting á Aðalskipulagi Biskupstungnahrepps 2000-2012 í landi Heiðar við fossinn Faxa í Bláskógabyggð.

    Nánar...

 

Uppsveitarbrosið

Uppsveitabrosið var afhent í níunda sinn á fundi á Hótel Heklu á Skeiðum í dag, 21. febrúar þar sem sveitarstjórnarmenn í Uppsveitum Árnessýslu og Flóa komu saman ásamt ferðamálafulltrúa til að ræða um ferðamál og horfa fram á veginn.

Sveitarstjórnarmenn fjölmenntu og sérstakir gestir fundarins voru þau Ólöf Ýrr Atladóttir ferðamálastjóri, Sveinn Rúnar Traustason umhverfisfulltrúi Ferðamálastofu, Áslaug Briem gæðastjóri Vakans.

Að þessu sinni var það minjavörður Suðurlands Uggi Ævarsson sem hlaut Uppsveitabrosið fyrir einstaklega góða samvinnu.

Samvinna Uppsveitanna við Fornleifavernd ríkisins hefur verið til mikillar fyrirmyndar um árabil og var það sérstakt fagnaðarefni að fá minjavörð á Suðurland.   Ferðaþjónusta, menning, saga og fornminjar tengjast órjúfanlegum böndum og þess vegna er mjög mikilvægt að gott samstarf sé milli faggreina.   Það hefur verið ánægjulegt að vinna með starfsfólki Fornleifaverndarinnar og Minjaverði Suðurlands að uppbyggingu og verkefnum í Uppsveitum Árnessýslu.

Spennandi tímar eru einnig framundan einkum í Þjórsárdal þar sem hugmyndasamkeppni um heildarmynd minjasvæðisins í Þjórsárdal hlaut nýlega styrk úr framkvæmdasjóði ferðamannastaða.

Uppsveitabrosinu sem er óáþreyfanlegt fylgir alltaf hlutur unninn af listamanni í Uppsveitunum og að þessu sinni er það krítarteikning eftir myndlistarkonuna Sigulínu Kristinsdóttur sem á galleríið „Myndlist í hesthúsi“ í Reykholti í Biskupstungum.

"Uppsveitabrosið" er viðurkenning sem veitt er árlega einstaklingi eða fyrirtæki. Bros frá Uppsveitunum til þeirra sem hafa lagt ferðaþjónustunni á svæðinu lið á jákvæðan uppbyggilegan hátt og stuðlað að samvinnu.

Markmiðið er að senda út jákvæð skilaboð og vekja athygli á því sem vel er gert.

 

Atvinna

Skrifstofustarf!!

Laust er til umsóknar 100% afleysingastarf til eins árs, hjá Hitaveitu Flúða og Hrunamannahreppi.Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 1.maí nk.Umsóknarfrestur er til 24 febrúar nk.

Allar nánari upplýsingar gefur sveitarstjóri í síma: 480 6600

eða á netfang: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 

 

Málefni fatlaðra

Málþing um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi

Stefnumótunarfundur um málefni fatlaðs fólks á Suðurlandi verður haldinn í sal Karlakórs Selfoss Eyrarvegi 67, föstudaginn 17. febrúar nk.  kl. 10.00 til 14.00 skv.   Fundurinn er opinn notendum, aðstandendum, hagsmunasamtökum, sveitarstjórnarmönnum,starfsmönnum sveitarfélaga og öðru áhugafólki.

Dagskrá:

10.00-10.50         Hugmyndafræði og samningur sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks

                               Hanna Björg Sigurjónsdóttir, dósent í fötlunarfræðum.

10.50-11.00         Staða málaefna fatlaðs fólks á Suðurlandi

                                María Kristjánsdóttir, formaður þjónusturáðs Suðurlands

11.00-11.15         Kaffi

11.15-12.00         Stefnumótun í málefnum fatlaðs fólks á Suðurlandi

                                Hópvinna þar sem stuðst verður við þjóðfundarformið

                                Fjögur meginþemu:

                                Búsetuþjónusta

                                Atvinnumál

                                Þjónusta við fjölskyldur

                                Félagsþjónusta

12.00-12.45         Léttur hádegismatur

12.45-14.00         Áframhaldandi hópavinna

                                Kynntar niðurstöður hópanna.

                               

Þátttakendur skrái sig á heimasíðu www.sudurland.is fyrir 15. febrúar 2012

 

Týnd fylfull meri


Dökkrauð/einlitt,  meri tapaðist úr girðingu við Bryðjuholt í Hrunamannahreppi, hún er örmerkt: IS 352097800004303

Merin er fylfull. Hennar er sárt saknað!  

Værum við mjög þakklát ef fólk athugaði  meðal sinna hesta. 

Þeir sem kunna að hafa upplýsingar vinsamlegast hafið samband við Sigurð í síma 898-3708 eða Guðlaugu s.822-2410
hér má sjá mynd að merinni http://smari.is/blog/2012/01/21/595260/
 

Síða 1 af 39

Fjölmenningarsetur